Mafían

the first rule of MB is you do not talk about MB

05.02.2007 14:41:09 / themob

cest donchello manzini

nú lærdómur hafinn er
í svöfusalinn mætt
lesa eins og mér vera ber
reyndar er hér margt rætt

greinilegt að ryðguð er
við vísnagerðirnar
nú þarf aldeilis að spýta í lófa hér
og halda sig við svöfuhefðirnar

byrjum bara stutt í dag
og bætum þetta síðar
þetta er jú mitt annað fag
nú verða bloggfærslurnar tíðar

Don Hressoni


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 10:27:57 / themob

morte libre staggioli mob?

Whats going on?


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 01:24:35 / DonPinkoni

Annar í jólum

Nú er kátt á Suðurgötu

stúlkur glaðar við skál

ekki drekkum við úr fötu

heldur  notum fín mál

Hressóní okkur yfirgaf

einar við sitjum og sötrum

Hlinsóní  bara heima svaf

en baðaður ástarfjötrum

Stuð og stemmari hér við völd

á Varsjá skal nú haldið

á okkur eru engin höld

og Ginið hefur valdið

Góðar stundir kæru Mafíufélagar!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 12:56:20 / DonPinkoni

Sul suo senso al suo ultimo exam!!

Nú hefur verið flautað til loka
í þessu jólaprófa stússi
Don Hressóní nú andar í poka
því stressið er á fullu blússi

Í síðasta prófið hún fer í dag
kenningar hún segir fara með sig
en hún hefur nú á því einstakt lag
áhyggjur því engar trufla mig

Hringir hún fyrir fyrsta hanagal
veit ég ekki hvað henni gekk til
ætli hún hafi þurft pepp tal
eða bara að taka eitt spil?

Gangi þér nú vel mín kæra
þú létt með þetta ferð
því meira þarftu ekki að læra
og ljósið aftur sérð


Don Pinkoni kveður


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 22:12:47 / themob

La primera Y la finito á manjana gusto

Í stað þess að skunda á ball annað kvöld

þá bjóðum við Hrezzoni ykkur að mæta

á safnið því þar verður gleðin við völd

og nóg úrval nýrra og mjög góðra sæta

???????????????????????????????

Freistandi, ég veit en ekki beislinu sleppa

um klæðaburð gerum við svolitla kröfu

Sokkar á eyrum og brækur með leppa

því stíll er í fyrirrúmi hjá "themob" and offkors Svövu


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 16:26:40 / themob

Finito!!

Vei vei.. síðasta prófið búið!! :lol:

Við erum náttúrulega alltaf svo fyndnar og höfum haft þann sið að mæta í búningum í síðasta próf annarinnar.. eeeeen þar sem þetta var síðasta prófið okkar EVER þá urðum við náttúrulega að gera þetta almennilega!! ;)



Flottustu hjúkkurnar í bænum (takið eftir kúrekaskónum.. ætlum að innleiða þessa tísku á skurðstofurnar hehehe)

Góðar stundir og vúúúúhúúúú 8)

» 9 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 17:29:17 / themob

l'ultima prova

Jæja pungar
Þá er síðasta próf skólagöngunnar hjá 5/7 mafíunnar á morgun.. megi okkur öllum ganga vel

Makkrel, Platón, Sókrates
Um sálartetrið fjalla
Vilhjálm Árna glöð ég les
í siðfræði ég ei vil falla

Raungæði og gæðastjórn
verðmæti, boð og bönn
hvað er nauðsyn, hvað er fórn
gefum við auga fyrir tönn?

Að læra kostar mikinn aga
yfir honum ei ég bý
nú samviskan er farin að naga
því sný ég mér að lestri á ný

» 6 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 11:51:39 / themob

Don chellíólí sanshitrí

nú hjúkkur allar streyma af stað

í prófið þær nú halda

heilsugæsla, púfff hvað er nú það

ég Hressóní, veit þið engum usla skal valda

tuff tuff tuff og verið töff

koma svo hjúkkulingar

ég veit þið ráðið við þetta stöff

þið eruð engir kjúklingar

sprauta, skoða mæla og fitla

það er það sem þið gerið best

viljið litla pungsa á strákum kitla

en enga finnið, það er nú verst

Don Hressoní...........


» 13 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 17:02:42 / themob

La saggezza è l'arma migliore

Það er ekki að spyrja að vinsældum mafíunnar.. yfir 100 gestir á fyrsta sólarhringnum! ;)

Þetta ætti að vera okkur hvatning í áframhaldandi skrifum og skemmtilegheitum. Hvet lesendur líka eindregið til að tjá athugasemdir sínar.. helst með viðeigandi mafíósanafni.. og að sjálfsögðu í bundnu máli!

Þegar meðlimir MB herja stríð
hvorki byssur né hnefa nota
heldur kveða um óvininn nýð
og þannig dauðarota

Penna og visku vel má nýta
sem vopn í lífi þessu
ef einhver angrar þá skal með bókum grýta
þar til hann verður að klessu

Lifið heil
Don Tískóní

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 22:48:23 / themob

La prima regola di M.B.

Sælar rottur

Í tilefni opnunar þessarar stórglæsilegu síðu sem Don Pinkoni á heiðurinn að (ásamt undirrituðum) langar mig að segja nokkur orð

1. Lítil mæting var á fund í kvöld og vonbrigðin hefðu ekki leynt sér í augum Svövu ef litið hefði verið í þau (dauðasynd skv. reglum félagsins)

2. Meðlimir Mafíunnar eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér reglur félagsins ítarlega. Komist upp um brot á reglum verða harðar refsingar.

3. Hver meðlimur hefur fengið sitt notendanafn og lykilorð á síðuna. Þær gersemar má nálgast hjá DP og DT

Love all.. serve all
F.h. Mafíunnar
Don Tískóní

» 18 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagsetning
10. febrúar 2012